Ef Rambo væri taska þá væri hann Base Camp Duffle ferða- og trússtaskan frá The North Face. Um er að ræða tösku úr slitsterku efni sem þolir allt það mögulega hnjask sem fylgt getur ferðalögum. Taskan rúmar 71 líter sem þýðir að þú getur troðið öllu og ömmu þinni ofan í hana! Það er ástæða fyrir því að björgunarsveitarmenn, leiðsögumenn og skátar velja TNF Base Camp Duffel undir búnaðinn sinn. Þetta er topp eintak af tösku sem á sér enga líka – einfaldlega best sinnar tegundar.

Taskan fæst m.a. í útivistarversluninni Ellingsen.